Sjómennskan er ekkert líf...
Skipasíður
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 26 október
Könnun
Er Davíð Oddson hæfur sem seðlabankastjóri?
1 atkvæði

Nei
1 atkvæði

Enga skoðun á því
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 2
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Dagsetning
9. febrúar 2012
03.10.2008 05:21:51 / goggiasjo

Drottinn blessi krónuna, aðrir tapa en ég hagnast.

Þótt liðið sé langt frá síðasta bloggi, humm kannski ár eða svo allavegna mjög langt, þá hefur margt drifið á mína daga, er búinn að vera mestmegnis á Brimnesinu en vegna hækkandi gengis þá tók ég tvo auka túra á Aðalsteini og er bara búinn að vera að gera það ágætt allavegna þennan mánuðinn.

Þótt stærðin á Brimnesinu og Aðalsteini er svipuð þá er þetta gjörólíkur veiðiskapur, var ég að prófa að veiða síld í fyrsta skiptið og fannst mér þetta með eindæmum skemmtilegur veiðiskapur, og ekki skemma launin fyrir þarna,,

Verð á sjó þar til 24. Nóvember og er þá kominn í jólafríið, þetta er fljótt að líða. Maður bara vonar að eitthvað jákvætt fari að gerast í þessu þjóðfélagi, þótt maður sé á nokkuð háu kaupi þá er maður ekkert undanskilin því að öll lán hjá manni hækkar. Maður bara skilur ekki hvernig láglaunafólk eigi eftir að fara útúr þessu miðað við að sumir eru að sætta sig við 150 þús kall á mánuði.

Þar til næst...


Aðalsteinn Jónsson SU-11

Brimnes RE-27


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 23:13:00 / goggiasjo

27 dagar í fríi, ahhh ég er að vera geðveikur

Komið þið blessuð og sæl,,, þegar þessi skilaboð eru skrifuð þá er ég á sjöunda bjór á fimmtudegi, kannski sumum mun finna það sorglegt en ég er ekki á leið í al anon. Það sem mér finnst verst er að þeir sem eru á móti mér í áhöfn eru ekki að standa sig neitt út á sjó skv. nýjustu fréttum þeir þurftu endilega að láta norsku strandhelgisgæsluna hirða sig og færa þá til lands sem þýðir 3 dagar í tímatap+keyrslan á miðin samtals í kringum 7 dagar sem eru farnir í súginn. En örvæntið ekki, ég er kominn með vinnu í landi sem ég get unnið við milli túra, ég er sko orðinn starfsmaður hjá fyrirtæki sem heitir reyk og eldþéttingar og er massa góður eldþéttingarmaður þótt ég segi sjálfur frá,, þannig ef þið hafið einhverjar áhyggjur og treysið ekki reykskynjaranum eða eitthvað í þeim dúr þá getið þið haft samband á vefnum http://reykur.is , þannig er það hjá mér í dag eins og er. En ég var að skoða aðeins gestabókina hjá mér og hef séð að fólk er ekkert rosalega duglegt við að kvitta fyrir sig,, þannig að mér þætti vænt um að þið mynduð allavegna láta vita af því að þið hefðuð heimsótt mig, ef þið skiljið eftir netfang þá mun ég heimsækja ykkur og allavegna láta vita af komu minni.

bestu kv. Goggi ekki á sjó sem stendur,,, en ég lofa að vera duglegri að setja inn myndir í komandi framtíð,,,, ég er að reyna 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 16:03:54 / goggiasjo

Vonandi höfðu allir það jafn gott yfir hátíðirnar og ég.

Það er nú fátt búið að gerast nú frá því að ég kom í land, kom þann 22. des í land og þá tókst bara stanslaust action sem er bara rétt að ljúka núna, fullt fullt af jólaboðum og síðan skítaveður um áramótin sem skemmdi aðeins fyrir en það sem lét mig verða fyrir mestum vonbrigðum um áramótin var skaupið eftir Ragnar Bragason, það var mjög slakt og bjóst ég við meiru frá honum. Síðan er skipið með hinni áhöfninni að fara út á morgun eða hinn, en það fer algjörlega hvort þeir ná að klára breytingarnar á millidekkinu,, þetta verður roslega flott aðstaða eftir breytingarnar enda hef ég verið aðeins að kíkja þarna niður eftir og er þetta allt til fyrirmyndar sýnist mér, en það á auðvitað eftir að koma í ljós í næsta túr. Síðan fer ég ekkert útá sjó fyrr en 16. feb, þannig ef einhver sem les þetta er að leita eftir duglegum starfskrafti til að vinna til 15-16 feb endilega beðnir um að hringja í mig enda ekki vanur að vera í svona löngum fríum aðgerðarlaus.

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 15:13:45 / goggiasjo

Erum að verða búnir að fylla, komnir með 109 milljónir.

Jæja gott fólk, nú fer þetta að styttast, fórum á sjóinn 12. Nóv og erum búnir að vera á veiðum við Bjarnarey sem er nokkuð norðanlega við Noreg eða einhversstaðar við 74 breiddargráðu, samt kemur það mér á óvart að það er ekkert svo kalt hérna,, örugglega hlýrra hér heldur en á Íslandi þessa stundina.

Við eigum ca. 40 tonn eftir af þorski og þá hefst heimferðin til Akureyrar þar sem hið langa frí hefst. Við erum nefnilega á kerfi hér sem gengur þannig fyrir sig að það er bara róið einn og einn og hluturinn er ca. 50% fer reyndar eftir stöðuheitinu. Þannig að maður er með jafnt fjárstreymi yfir árið. Og þar sem næsti túr er langur þá er ekki á sjóinn fyrir mig fyrr en 16-17 febrúar.

Við erum á heilfrystingu hér um borð og erum bara 6 á vakt eða alls 18 um borð sem er alveg nóg því að flakavinnslan er engin, síðan er allt sett á bretti og raðað með lyftara niðri lest,mjög þægilegt.

 

Menn að hafa það gott í setustofunni,, búnir að skreyta jólatréð.


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 09:54:20 / goggiasjo

Aftur á sjó,,, í 40 daga og 40 nætur.

Jæja nú fer að líða að því að maður fari á nýja togarann, er annars búinn að vera að leika mér á ísfiskaranum Sturlaugi H. Böðvarssyni og línuskipinu jóhönnu Gísladóttir. Er annars bara að mála nýju íbúðina þar til ég fer á sjó þann 12. nóv. Fer á veiðar við eyju við norður Rússland, eyju þar sem Rússar hafa haft til að prófa allar sínar kjarnorkusprengingar þannig að þessi eyja hefur orðað að þola allar stæstu kjarnorkusprengjur sögunnar. Þetta verður mjög spennandi enda er þetta algjört eðalskip, eitt best búna skip flotans. Kem síðan heim rétt fyrir aðfangadag.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 13:47:31 / goggiasjo

Fatlafól, flakkandi um á 10 gíra spítthjólastól....

Jæja, sá sorglegi atburður átti sér stað að ég rústaði þumalputtanum útá sjó núna aðfaranótt þriðjudags, var siglt með mig í fússi inn á Patró þar sem að læknir tók á móti mér og kíkti á puttann, puttinn leit nú ekki betur út en það að það var pantað sjúkraflug í hvelli, mér var flogið á reykjavíkurflugvöll þar sem ég var fluttur með sjúkrabíl í fossvoginn þar sem reynt var að gera sem best úr puttanum, þannig að ég er frá sjó í minnsta kosti 5 vikur eða þar til að ég fer í endurmat, ég skal láta vita hvernig fer um leið og ég veit eitthvað sjálfur :o)

kv Goggi 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 22:14:03 / goggiasjo

Enn ein sjóferðin........................ :o( og síðan frí og útlönd :o)

 

 Jæja, nú eu bara 2 dagar í brottför aftur og stefnir allt í að maður fær að hanga útá ballarhafi í 27 daga ca. áður enn maður kemst í fríið, en tölvan mín er biluð og fæ ég vonandi lánstölvu svo ég geti skrifað eitthvað bull af sjónum. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 20:32:04 / goggiasjo

Kerlingarnar eru sko að standa sig í tuðrusparki

Það er alveg ótrúlegt hvað þetta getur verið hvimleitt þegar kerlingarnar eru að niðurlægja okkur karlmennina (hetjurnar) í þjóðaríþrótt karlanna. Meðan við erum einhversstaðar á sama stað og Grænhöfðaeyjar á styrkleikalista Fifa world ranking þá eru stelpurnar einhversstaðar á meðal þeirra bestu í heiminum, vinna Frakkana og síðan undirstrika þær ágæti sitt með því að rasskella Serbana.

Ég er kominn með samt ágætis lausn á þessu með okkur hetjurnar, við ættum bara að koma FH liðinu í landsliðstreyjurnar og hætta að púkka upp á þessa ræfla sem komast hvergi að annarsstaðr heldur en í norsku deildinni, eflaust vegna þess að þeir þykja bara ekki nógu góðir til að spila í íslensku deildinni.

Þá er það annað vandamál, það eru útlendingarnir í FH liðinu, hvað eigum við að gera við þá. Ekki getum við sett menn af öðru þjóðerni í okkar ástkæru landsliðsbúninga. Lausnin á því er einföld,,, látum bara Jónínu Bjartmarz ættleiða þá, þá fá þeir íslenskt ríkisfang í hvelli og málinu er reddað.

 

Áfram Ísland

rithöfundur er ekki FH-ingur (GO VIKINGS)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 01:50:08 / goggiasjo

Langt síðan síðast....Sorry

Já mar er búinn að vera heldur latur við að skrifa, enda svo sem lítið að frétta hérna af sjónum, maður er nú búinn að sigla nánast stanslaust frá áramótum, og á ég ennþá einn túr eftir. Við erum bara í úthafinu núna að fiska nokkuð vel, mórallinn fínn og menn nokkuð sáttir við aflabrögð. Veðrið er búið að vera bara hreinasta snilld síðustu 14 dagana, varla búinn að sjást gára á sjónum.

 

 Tók hérna smá mynd af sólarlaginu, voðalega flott

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 19:04:46 / goggiasjo

jæja búinn að vera 90 daga á sjó frá áramótum, Bara 75 dagar í fríið.....

Jæja þá er maður rúmlega hálfnaður í þemanum að sigla sig vitlausann, ég er nefnilega að gera vísindartilraun um það hversu lengi maður getur verið útá sjó áður en maður missir vitið. Kannski er þetta bara aurapúkaháttur í manni, maður spyr sig.

Þetta er samt ekki eins slæmt og flestir halda þótt maður hittir ekki fjölskylduna sína í lengri tíma, en það er reyndar eini gallinn við að vera á sjó. Ef það væri þyrla hér og að maður kæmist heim svona af og til í túrnum þá væri þetta besta vinna í heimi. Hér er allt til alls og má þar helst nefna gufubað, ljósabekk (sem er orðinn það gamall að það eru svona 98,4% líkur á því að fá banvænt sortuæxli efir ca. 5 mínútur í honum), góð líkamsrækt og svo er gervihnattarsjónvarp þar sem við getum horft á sky digital og síðan á að fara að senda út rúv í gegnum gervihnött (ætli maður fari að sjá útgjaldarliðinn afnotagjald á launaseðlinum, mar veit aldrei) og síðan er auðvitað netið alveg topp tenging (eða þannig) frá Brimrúnu, mæli með því að ef menn ætla að kaupa netið útá sjó að kaupa frá símanum, þetta dót frá brimrúnu er búið að vera mjög vafasamt en það er búið að lagast aðeins, en það er samt búið að vera vesen á netinu í hálft ár eða svo.

Nú þegar ég skrifa þessa vitleysu þá er nákvæmlega vika eftir af túrnum sem er búinn að vera nokkuð aflasæll og stefnir í stærsta túrinn síðan ég byrjaði á vigranum. Veðurfarið er búið að vera ágætt enda kominn tími til, það er búið að vera frekar slæmt í sjóinn þennan veturinn, gott að vera á sæmilega stóru skipi.

Þá hef ég eiginlega ekkert meira að segja að sinni, reyni að blogga meira þegar ég nenni því,ætla að halda áfram að borða páskaegg.


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 19:58:58 / goggiasjo

Netið komið á eftir smá strögl

Loksins, smá tæknileg mistök hjá ákveðnum mönnum í landi eru búinn að verða til þess að maður er búinn að liggja í þessu gervihnattarstöffi til að fá þetta í gang og loksins hafðist það. Ég var búinn að lofa að blogga eitthvað smá og það eru ýmis mál sem mér finnst vert að tala um þessa daganna. T.d. málið með byrgið, ég veit að þetta er alvarlegt sem gerðist í Breiðuvík og allt það fyrir 30 árum eða svo og eiga fórnarlömb þeirrar stofnunar allt gott skilið fyrir meðferðina sem þeir lentu í þar, en afhverju að þegja í 30 (ekki alveg með á hreinu hvenær þetta gerðist en áætla í kringum 30 ár) ár og láta þetta koma fyrst fram í dagsljósið í framhaldi af byrgis umræðunni. Og hvað er að hjá þessarri ríkisstjórn að firra sig af ábyrgð í þessum málum, Hjá öllum öðrum þjóðum í kringum okkur þá væri þá ráðherra sem kæmi næst viðkomandi máli löngu búinn að segja af sér, en það er skrítið hvað þessir kallar hér í brúnni halda að þeir geti komist upp með, og þeir eru meira að segja farnir að reyna að kaffæra þetta mál, láta það gleymast. Fleiri hundruðir milljóna úr skattpeningum borgaranna hafa runnið beint í vasann á einhverjum trúar fúskara sem misnotaði aðstöðu sína frammi fyrir guði, mér finnst að félagsmálaráðherra sem mér persónulega finnst eiga að bera ábyrgð á þessu máli ætti umsvifalaust að segja af sér í staðinn fyrir að reyna að láta þetta mál gleymast.

Alls ekki ólíkir......

 Síðan er það annað mál um Guðmund og Geirfinnsmálið sem sýnir bara hvað þetta kerfi er rotið og hve mikil spilling er við lýði í þessu landi. 

Hvet alla til að lesa þetta og dæmi nú hver fyrir sig....

http://mal214.googlepages.com/

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 15:31:15 / goggiasjo

Afsaka leti við bloggfærslur

Þetta er búinn að vera mjög lélegur bloggárangur af því sem komið er af árinu enda eru nokkrar ástæður fyrir því, í fyrsta lagi leti, öðru lagi internetið ekki að standa sig útá sjó og svo þá er bara lítið að frétta,nú er ég á þriðja degi í landi og fer út aftur á föstudaginn eftir 2 daga. Ætla að reyna að vera duglegri að setja inn myndir og færslur þennan túrinn.
kv. Goggi


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 21:33:36 / goggiasjo

Aftur á sjó eftir langt frí

Þetta er aldeilis búið að vera alltof langt frí, en aftur á móti var mjög gott að vera með fast undir fótunum meðan strákarnir voru í einhverjum mesta brælutúr sem menn muna eftir. En nú erum við komnir á torgið og er veðrið ágætt í þessum skrifuðu orðum.

Það sem er helst að frétta er að Rúnar útgerðarstjóri hjá Granda er gjörsamlega búinn að tapa glórunni, fyrst þá lætur hann reka alla úr brúnni á Þerney vegna þess að þeir fiska svo lítið og síðan núna þá eru allir á Engey "þjóðarstolti Íslendinga" búnir að fá uppsagnarbréfið, þetta er jólagjöfin hjá Granda í ár, uppsagnarbréf skrifað með skrautskrift. Já það á að senda þjóðarstoltið til Afríku (þar sem þrælahald er enn við líði). Afhverju að vera með 27 menn um borð hver með sína milljón á mánuði þegar þeir geta haft 100 svarta (sem geta ekki kvartað vegna tungumálaókunnáttu), hver og einn með 350 dollara á mánuði eða allir með samanlagt ca. 35 þús. dollara sem er ca. 2,5 milljónir.

Þannig að ef þú ert dökkur á hörundi, duglegur og sættir þig við lág laun þá er um að gera að sækja um á þjóðarstolti Íslendinga.


» 14 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 00:35:02 / goggiasjo

Jæja, pásan búin

Jæja, ég ákvað loks að setja eitthvað inn á þessa síðu, er búinn að versla allar jólagjafir þannig að stressið er að mestu búið, nú er bara að bíða og njóta þess að horfa á aðra stressa sig um jólin meðan maður chillar bara með bjor einhversstaðar. Annars er það að frétta að mér að ég er  bara búinn að vera vinna í fiskbúðinni yfir desembermánuðinn við að flaka og fl. Búinn að djamma létt og eitthvað. Ég öfunda þá ekkert sem eru á sjó núna því ég veit að þetta er búinn að vera hvílíkur brælutúr, enda veðrið í landi ekki búið að vera upp á marga fiska.

Bara svona til að glenna framan í ykkur þá set ég mynd af ísskápnum mínum hér á síðuna.
nammi namm


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 13:09:10 / goggiasjo

Núna styttist í það...

.Já, þá fer þessi langi túr að verða búinn, loksins enda er eins og maður hafi verið kominn aftur á steinöld í tæknimálum vegna bilunar á netinu síðastliðna 7 daga, netið úti og síminn í þokkabót líka. Jæja best að hætta þessu væli, draslið er hrokkið í gang og túrinn er að verða búinn, bara fjórir dagar eftir. Hér er eins og í landi alveg snældu vitlaust veður alveg upp í 44 m/sek eða um 158,4 km/klst. Jafnhratt og Oddur keyrir dagsdaglega. Þess vegna hef ég ákveðið að kalla þetta óveður ";fellibylurinn Oddur, og svo er meira að frétta, það hafa gerst undur og stórmerki hér um borð,, það er búið að setja upp LCD skjáina í ræktina, tók sinn tíma en þeir komu upp á endanum, það á bara eftir að setja þá í samband og tengja við loftnet, .en ég held að ég komi ekkert með fréttir um það fyrr en seint í næsta túr.

Þessi fær sér stera út á seríósið


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Leitarbox

Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 26 október
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 25476